Bændaglíma Nesklúbbsins verður haldin laugardaginn 28. september. Bændaglíman sem er svo sannarlega mót á léttu nótunum og til gamans gert er jafnframt síðasta formlega mót sumarsins. Því eru allir félagsmenn hvattir til þess að mæta og kveðja þetta frábæra golftímabil með stæl. Bændur í ár verða eðalhjónin Oddný Rósa og Stefán Örn sem allir félagsmenn þekkja. Dagskrá: Mæting kl. 12.00 Þá verða bændur búnir að skipta þátttakendum í tvö lið með aðstoð mótsstjórnar. Fjórir verða saman í holli og verður leikið fjögurra manna Texas-scramble höggleikur. 12.30 - liðin tilkynnt og bændur munu bjóða upp á létta hressingu og hvetja sín lið til dáða. Gengið er út frá því að spila 18 holur nema veður muni gefa sérstakt tilefni til annars. Af gömlum sið Nesklúbbsins mun liðið sem tapar bregða sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir sem að hefst strax og leik er lokið og mun því þjóna sigurliðinu til borðs. Þátttökugjald aðeins kr. 5.000 pr. mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur Matseðill: Eitthvað alveg geggjað að hætti Hödda og co. Skráning fer nú fram á golf.is og lýkur fimmtudaginn 26. september. ATH. Skráningin mun ekki gefa rétta mynd af ráshópum þar sem að liðsstjórar munu velja í lið og er því eingöngu til að skrá kylfinga til leiks. ALLIR og þá meinum við ALLIR félagsmenn sem geta verða að taka þátt í þessu skemmtilega móti.
Bændaglíma Nesklúbbsins verður haldin laugardaginn 28. september. Bændaglíman sem er svo sannarlega mót á léttu nótunum og til gamans gert er jafnframt síðasta formlega mót sumarsins. Því eru allir félagsmenn hvattir til þess að mæta og kveðja þetta frábæra golftímabil með stæl.
Bændur í ár verða eðalhjónin Oddný Rósa og Stefán Örn sem allir félagsmenn þekkja.
Dagskrá:
Mæting kl. 12.00
Þá verða bændur búnir að skipta þátttakendum í tvö lið með aðstoð mótsstjórnar. Fjórir verða saman í holli og verður leikið fjögurra manna Texas-scramble höggleikur.
12.30 - liðin tilkynnt og bændur munu bjóða upp á létta hressingu og hvetja sín lið til dáða.
Gengið er út frá því að spila 18 holur nema veður muni gefa sérstakt tilefni til annars.
Af gömlum sið Nesklúbbsins mun liðið sem tapar bregða sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir sem að hefst strax og leik er lokið og mun því þjóna sigurliðinu til borðs.
Þátttökugjald aðeins kr. 5.000 pr. mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur
Matseðill: Eitthvað alveg geggjað að hætti Hödda og co.
Skráning fer nú fram á golf.is og lýkur fimmtudaginn 26. september.
ATH. Skráningin mun ekki gefa rétta mynd af ráshópum þar sem að liðsstjórar munu velja í lið og er því eingöngu til að skrá kylfinga til leiks.
ALLIR og þá meinum við ALLIR félagsmenn sem geta verða að taka þátt í þessu skemmtilega móti.