Það verða 4 níu holu kvennamót hjá Golfklúbbi Grindavíkur í sumar. Mótin verða síðasta mánudag hvers mánaðar. Fyrsta mótið er þann 27. maí. Fyrirkomulag mótanna verður á þann hátt að konur geta mætt til leiks allan daginn, þurfa bara að skrá sig á rástíma og láta vita að þær ætli að taka þátt. Frátekið verður í mótið um kl. 18:00 en þá er gert ráð fyrir að þær sem þá mæta ræsi út samtímis. Látið verður vita í upphafi hvers móts hvort fyrri eða seinni 9 holur vallarins verða spilaðar. Bláa Lónið leggur til vinninga í öll mótin. Spiluð verður punktakeppni með forgjöf. Verðlaun eru húðvörur frá Bláa Lóninu 1.sæti Shower Gel - Body Lotion og Silica Body Scrub 2.sæti Signature Masks 3.sæti Signature Masks Nándarverðlaun Signature Masks
Það verða 4 níu holu kvennamót hjá Golfklúbbi Grindavíkur í sumar. Mótin verða síðasta mánudag hvers mánaðar. Fyrsta mótið er þann 27. maí. Fyrirkomulag mótanna verður á þann hátt að konur geta mætt til leiks allan daginn, þurfa bara að skrá sig á rástíma og láta vita að þær ætli að taka þátt. Frátekið verður í mótið um kl. 18:00 en þá er gert ráð fyrir að þær sem þá mæta ræsi út samtímis. Látið verður vita í upphafi hvers móts hvort fyrri eða seinni 9 holur vallarins verða spilaðar.
Bláa Lónið leggur til vinninga í öll mótin.
Spiluð verður punktakeppni með forgjöf.
Verðlaun eru húðvörur frá Bláa Lóninu
1.sæti Shower Gel - Body Lotion og Silica Body Scrub
2.sæti Signature Masks
3.sæti Signature Masks
Nándarverðlaun Signature Masks