Site Logo
iwida617802a2956

Golfklúbburinn Ós

Opna Víkurrafsmótið

19.06.2016 22:01 Opna Víkurrafsmótið

Katlavöllur er einn fallegasti níu holu golfvöllur á Íslandi og það verður ekki of sögum sagt á degi sem þessum. Í dag fór þar fram opna Víkurraf-Heimilistækimótið. Spilað var með Texas Scramble fyrirkomulagi og tóku 28 einstaklingar þátt eða 14 lið.

Mótið lukkaðist afar vel enda einmuna veðurblíða. Í 1. sæti voru þeir Jón Elvar Steindórsson & Karl Hannes Sigurðsson með 62 högg og fengu hvor flatskjá í verðlaun. Í 2. sæti Benedikt Þór Jóhannsson & Arnþór Hermannsson með 66 högg og hlutu þeir hvor sínakaffivélina að launum. Í 3. sæti Magnús G. Hreiðarsson & Birna Dögg Magnúsdóttir með 67 högg og unnu hvort sitt samlokugrillið. Parið á vellinum er 70 högg miðað við tvo hringi.

Guðmundur Friðgeirsson og Kristín Magnúsdóttir unnu nándarverðlaun á par þrír holum, heyrnartól og vínglös.

Golfklúbburinn vill koma þakklæti á framfæri til Víkurraf og Heimilistækja með þökk fyrir samstarfið.

 

Til baka