Site Logo
iwidd7e604d68a98

Golfklúbbur Borgarness

Um klúbbinn

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar var stofnaður 24. mars 1994 með atbeina stjórnenda beggja bæjanna sem síðan hafa stutt vel við klúbbinn.

Svæði félagsins er í Vetrarmýri í landi Vífilsstaða austan Reykjanesbrautar og norðan Vífilsstaða og teigir sig allt upp í Kórahverfi í Kópavogi þar sem 9 holur til viðbótar voru byggðar í Leirdal í landi Kópavogs en þær voru opnaðar vorið 2007 það eru því 27 brautir á svæði klúbbsins. Æfingasvæði er stórt og glæsilegt og öll aðstaða til golfiðkunar á svæði klúbbsins með því sem besta sem gerist á landinu.

Um 1,800 félagar eru nú í GKG. Aðalfundur er haldinn í lok nóvember ár hvert þar sem m.a. stjórn klúbbsins er kosin. Frá upphafi hefur verið öflugt félagsstarf og góður félagsandi einkennt starfssemi GKG. Í klúbbnum eru starfandi ýmsar nefndir og klúbbar, t.d. unglinganefnd, afreksmannanefnd, hjónaklúbbur, öldunganefnd, kvennanefnd og ferðanefnd. Einnig er rekið öflugt nýliðastarf þar sem nýliðar sækja bæði bókleg og verkleg námskeið.

Framkvæmdastjóri GKG sér um allan rekstur og gefur upplýsingar um starfssemina í síma 565 7373 eða með tölvupósti:gkg@gkg.is