Mótið verður TARAMARMÓT á Leirdal og hefst kl. 10.00 og ræst er út á öllum teigum (shotgun), ræst verður út kl. 9.30 á Mulligan. Leikfyrirkomulagið er tveggja manna Texas Scramble (sjá upplýsingar hér fyrir neðan) og konur nr. eitt og tvö í rástímaskrá eru saman í holli og kona nr. þrjú og fjögur saman. Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin, nándarverðlaun á par þrjú holum bolti verður að enda inni á flöt, dregið úr skorkortum og teiggjafir frá Perform.is. Lokahófið og verðlaunaafhending verður í lokin og hefst kl. 15.00 á Mulligan með veislumat, krýningum á fuglameistara og bestu mætingu í sumar. Björk Jakobsdóttir fjöllistakona kemur til okkar og verður með skemmtilegt uppistand. Skráning er á golf.is og verður opnuð fyrir skráningu fimmtudaginn 5. sept. kl. 12:00. Þar sem mótið er tveggja manna Texas Scramble og ef þið náið ekki að skrá ykkur saman sem ætlið að spila saman þá biðjum við ykkur að senda okkur t.póst í gkgkonur@gmail.com til að fá lagfæringar. Biðjum við vinsamlegast konur sem ætla að spila saman að skrá sig saman í holl. Þær konur sem ætla að mæta eingöngu í hófið og matinn skrá sig með t.pósti á gkgkonur@gmail.com . Sama verð er í mótið og lokahófið, eða eingöngu lokahófið kr. 3.000.- sem greiðist við skráningu. Tveggja manna Texas Scramble: Texas Scramble fer þannig fram að báðir leikmenn liðsins slá högg af teig, síðan velja þeir þann bolta sem þeim þykir vera í betri stöðu og slá báðir boltann þaðan. Sá sem á þann bolta sem kylfingunum þykir lakari færir því sinn bolta að bolta félaga síns. Sá sem átti betri boltann slær á undan og hinn á eftir. Eftir þau högg endurtekur ferlið sig allt þangað til boltinn er kominn í holuna. Texas Scramble er spilað með forgjöf og er reglan sú að sameiginleg vallarforgjöf kylfinganna í þessu tilviki er hámarksleikforgjöf 36 er lögð saman og deilt í hana með tölunni fimm. Vonumst til að sjá sem flestar ykkar!
Mótið verður TARAMARMÓT á Leirdal og hefst kl. 10.00 og ræst er út á öllum teigum (shotgun), ræst verður út kl. 9.30 á Mulligan. Leikfyrirkomulagið er tveggja manna Texas Scramble (sjá upplýsingar hér fyrir neðan) og konur nr. eitt og tvö í rástímaskrá eru saman í holli og kona nr. þrjú og fjögur saman. Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin, nándarverðlaun á par þrjú holum bolti verður að enda inni á flöt, dregið úr skorkortum og teiggjafir frá Perform.is.
Lokahófið og verðlaunaafhending verður í lokin og hefst kl. 15.00 á Mulligan með veislumat, krýningum á fuglameistara og bestu mætingu í sumar. Björk Jakobsdóttir fjöllistakona kemur til okkar og verður með skemmtilegt uppistand. Skráning er á golf.is og verður opnuð fyrir skráningu fimmtudaginn 5. sept. kl. 12:00. Þar sem mótið er tveggja manna Texas Scramble og ef þið náið ekki að skrá ykkur saman sem ætlið að spila saman þá biðjum við ykkur að senda okkur t.póst í gkgkonur@gmail.com til að fá lagfæringar. Biðjum við vinsamlegast konur sem ætla að spila saman að skrá sig saman í holl.
Þær konur sem ætla að mæta eingöngu í hófið og matinn skrá sig með t.pósti á gkgkonur@gmail.com . Sama verð er í mótið og lokahófið, eða eingöngu lokahófið kr. 3.000.- sem greiðist við skráningu.
Tveggja manna Texas Scramble:
Texas Scramble fer þannig fram að báðir leikmenn liðsins slá högg af teig, síðan velja þeir þann bolta sem þeim þykir vera í betri stöðu og slá báðir boltann þaðan. Sá sem á þann bolta sem kylfingunum þykir lakari færir því sinn bolta að bolta félaga síns. Sá sem átti betri boltann slær á undan og hinn á eftir. Eftir þau högg endurtekur ferlið sig allt þangað til boltinn er kominn í holuna. Texas Scramble er spilað með forgjöf og er reglan sú að sameiginleg vallarforgjöf kylfinganna í þessu tilviki er hámarksleikforgjöf 36 er lögð saman og deilt í hana með tölunni fimm.
Vonumst til að sjá sem flestar ykkar!