ATHUGIÐ: Vegna mikillar aðsóknar í mótið hefur verið lokað fyrir frekari skráningar þátttakenda í mótinu. Fyrirséð er að tveir ráshópar verði ræstir á flestum brautum. Hafi einhverjir hug á að mæta í afmælisveisluna án þess að taka þátt í mótinu sjálfu kostar miðinn 4.000 kr. Er viðkomandi bent á að hafa sem fyrst samband við formann klúbbsins, Bryndísi Scheving (bryndisscheving@gmail.com) til að skrá sig. Fyrirkomulag: Punktakeppni með fullri forgjöf -18 holur. Golfklúbburinn Dalbúi verður 30 ára í sumar, og af því tilefni verður haldið sérstakt afmælismót laugardaginn 17. ágúst, þar sem leikið verður 18 holu punktamót með fullri forgjöf, en með því fyrirkomulagi eiga allir félagsmenn góða möguleika á verðlaunasætum! Mótið hefst kl. 11.00 og verður ræst út af öllum teigum samtímis, og eru kylfingar beðnir að mæta tímanlega til leiks. Úrslitin í mótinu verða síðan tilkynnt í afmælisveislu sem hefst kl. 18.00, en boðið verður upp á grill og meðlæti í tilefni afmælisins, þar sem tækifæri gefst til þess að spjalla og skemmta sér saman. Vegleg verðlaun eru fyrir fyrir góðan árangur í afmælismótinu, og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna í mótið og taka með sér gesti. Mótsgjald: 5.000,- kr. (golf + afmælisveisla). Hafi einhverjir hug á að mæta í afmælisveisluna en hafa ekki tækifæri til að taka þátt í mótinu sjálfu, er það einnig í boði, og kostar miðinn 4.000 kr. Er viðkomandi bent á að hafa sem fyrst samband við formann klúbbsins, Bryndísi Scheving (bryndisscheving@gmail.com) til að skrá sig. Stjórn GD áskilur sér rétt til að takmarka fjölda þátttakenda, reynist það nauðsynlegt.
ATHUGIÐ:
Vegna mikillar aðsóknar í mótið hefur verið lokað fyrir frekari skráningar þátttakenda í mótinu. Fyrirséð er að tveir ráshópar verði ræstir á flestum brautum.
Hafi einhverjir hug á að mæta í afmælisveisluna án þess að taka þátt í mótinu sjálfu kostar miðinn 4.000 kr. Er viðkomandi bent á að hafa sem fyrst samband við formann klúbbsins, Bryndísi Scheving (bryndisscheving@gmail.com) til að skrá sig.
Fyrirkomulag: Punktakeppni með fullri forgjöf -18 holur.
Golfklúbburinn Dalbúi verður 30 ára í sumar, og af því tilefni verður haldið sérstakt afmælismót laugardaginn 17. ágúst, þar sem leikið verður 18 holu punktamót með fullri forgjöf, en með því fyrirkomulagi eiga allir félagsmenn góða möguleika á verðlaunasætum!
Mótið hefst kl. 11.00 og verður ræst út af öllum teigum samtímis, og eru kylfingar beðnir að mæta tímanlega til leiks.
Úrslitin í mótinu verða síðan tilkynnt í afmælisveislu sem hefst kl. 18.00, en boðið verður upp á grill og meðlæti í tilefni afmælisins, þar sem tækifæri gefst til þess að spjalla og skemmta sér saman.
Vegleg verðlaun eru fyrir fyrir góðan árangur í afmælismótinu, og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna í mótið og taka með sér gesti.
Mótsgjald: 5.000,- kr. (golf + afmælisveisla).
Hafi einhverjir hug á að mæta í afmælisveisluna en hafa ekki tækifæri til að taka þátt í mótinu sjálfu, er það einnig í boði, og kostar miðinn 4.000 kr. Er viðkomandi bent á að hafa sem fyrst samband við formann klúbbsins, Bryndísi Scheving (bryndisscheving@gmail.com) til að skrá sig.
Stjórn GD áskilur sér rétt til að takmarka fjölda þátttakenda, reynist það nauðsynlegt.