Lýsum haustmyrkrið upp með leiftrandi golfi Fimmtudaginn 12. september 2019 kl. 19:30 ATH ræst er út á öllum teigum, þeir sem eru saman í ráshóp spila saman í liði. Nú er komið að ljósamótinu þar sem við skemmtum okkur saman við að lýsa upp myrkrið með sjálflýsandi boltum, fjarlægðarhælum, holum og leikmönnum. Þetta haustið spilum við 14 holur; alla Mýrina og fimm holur á Leirdalnum. Ræst verður út í rökkri af öllum teigum í einu og leikið inn í myrkrið. Engum verður kalt því það verður heitt kakó á kantinum, aðrar veigar skaffa leikmenn sjálfir. Mótið er fjögurra manna texas scramble, punktamót með forgjöf. Veitt verða verðlaun fyrir þau lið sem verða í tveimur efstu sætunum auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir þá sem verða næstir holu í upphafshöggum á par 3 holum. Að auki verða veitt verðlaun fyrir þann sem er næstur holu í öðru höggi á 18. braut í Leirdal. Verði tvö lið jöfn í sæti, þá gilda seinni 7 holurnar, þá 3 og 1. Séu liðin ennþá jöfn skal varpa hlutkesti. Ræst verður út á öllum teigum samtímis k. 19:30 stundvíslega. Mótið er 14 holur, það er öll Mýrin auk 1., 3., 16, 17. og 18. hola á Leirdal. Hringurinn er þannig að eftir 9. holu á Mýrinni er 1. hola á Leirdal leikin, þá 17. og 18. Eftir 18. holu er 1. hola á Mýrinni leikin. Skráning fer fram á golf.is. Ekki þarf að safna saman í fjögurra manna holl heldur er nóg að skrá sig á rástíma. Þeir sem eru saman á rástíma spila saman í liði. Verð er kr. 4.900. Innifalið í mótsgjaldi er hamborgari eða samloka A La Viggi eftir móti, þrír sjálflýsandi boltar, lýsing á leikmenn og heitt kakó út á velli. Hægt verður að kaupa fleiri sjálflýsandi bolta. Opna sviðið verði galopið yfir snæðingnum eftir mót fyrir alla þá sem vilja skemmta sjálfum sér og öðrum.
Lýsum haustmyrkrið upp með leiftrandi golfi
Fimmtudaginn 12. september 2019 kl. 19:30
ATH ræst er út á öllum teigum, þeir sem eru saman í ráshóp spila saman í liði.
Nú er komið að ljósamótinu þar sem við skemmtum okkur saman við að lýsa upp myrkrið með sjálflýsandi boltum, fjarlægðarhælum, holum og leikmönnum. Þetta haustið spilum við 14 holur; alla Mýrina og fimm holur á Leirdalnum. Ræst verður út í rökkri af öllum teigum í einu og leikið inn í myrkrið. Engum verður kalt því það verður heitt kakó á kantinum, aðrar veigar skaffa leikmenn sjálfir.
Mótið er fjögurra manna texas scramble, punktamót með forgjöf. Veitt verða verðlaun fyrir þau lið sem verða í tveimur efstu sætunum auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir þá sem verða næstir holu í upphafshöggum á par 3 holum. Að auki verða veitt verðlaun fyrir þann sem er næstur holu í öðru höggi á 18. braut í Leirdal.
Verði tvö lið jöfn í sæti, þá gilda seinni 7 holurnar, þá 3 og 1. Séu liðin ennþá jöfn skal varpa hlutkesti.
Ræst verður út á öllum teigum samtímis k. 19:30 stundvíslega. Mótið er 14 holur, það er öll Mýrin auk 1., 3., 16, 17. og 18. hola á Leirdal. Hringurinn er þannig að eftir 9. holu á Mýrinni er 1. hola á Leirdal leikin, þá 17. og 18. Eftir 18. holu er 1. hola á Mýrinni leikin.
Skráning fer fram á golf.is. Ekki þarf að safna saman í fjögurra manna holl heldur er nóg að skrá sig á rástíma. Þeir sem eru saman á rástíma spila saman í liði.
Verð er kr. 4.900. Innifalið í mótsgjaldi er hamborgari eða samloka A La Viggi eftir móti, þrír sjálflýsandi boltar, lýsing á leikmenn og heitt kakó út á velli. Hægt verður að kaupa fleiri sjálflýsandi bolta.
Opna sviðið verði galopið yfir snæðingnum eftir mót fyrir alla þá sem vilja skemmta sjálfum sér og öðrum.