Opna golfmót knattspyrnudeildar Fjölnis verður haldið laugardaginn 24. ágúst n.k. og hefst kl. 10:00. Mótið fer fram á golfvellinum í Þorlákshöfn annað árið í röð.Mæting í skála er í síðasta lagi kl. 9:15. Ræst verður af af öllum teigum kl. 10:00.Leikið verður með Texas scramble fyrirkomulagi og verðlaun verða sem hér segir:Texas scramble - verðlaun fyrir 3 efstu liðin.Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.Teiggjöf - fyrir alla.Dregið úr skorkortum.Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28. Dæmi: Ef aðili er ekki með forgjöf þá er skráð 24 í karlaflokki en 28 í kvennaflokki.Verðlaunaafhending fer fram að móti loknu,í golfskálanum.Þátttökugjald:5.490.-6.490.- með grilluðum hamborgara og drykk.Venjan er að skrá heillt holl í einu en einnig er í boði að skrá stök sæti og þá er viðkomandi paraður með öðrum spilara.Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið leifur33@gmail.comRita skal ,,Fjölnir Open 2019” í ,,efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt símanúmeri og netfangi. Ennfremur skal taka fram ef fólk óskar eftir skráningum saman í holl.Mótið er öllum opið og við lofum góðri skemmtun og blíðskaparveðri.Takið daginn frá!