FÓRST ÞÚ HOLU Í HÖGGI Á ÁRINU 2019 NÝTT MÓT HJÁ NESKLÚBBNUM Í SAMSTARFI VIÐ EINHERJAKLÚBBINN, GOLFSAMBAND ÍSLANDS, ÖSKJU OG VÖRÐ. Þeir kylfingar sem fóru holu í höggi á árinu 2019 og hafa skráð afrekið hjá Einherjaklúbbnum eiga möguleika á því að vinna flugferð fyrir tvo til Evrópu eða jafnvel Mercedes-Bens bifreið frá ÖSKJU. Þann 7. september 2019 geta þeir sem hafa skráð holu í höggi hjá Einherjaklúbbnum á tímabilinu 1. janúar 2019 - 31. ágúst 2019 mætt á Nesvöllinn. Þar munu allir allir fá eitt högg á braut 2 og sá sem er næstu holu vinnur flugferð fyrir tvo til Evrópu með Icelandair. Fyrir holu í höggi í þessari einu tilraun fær viðkomandi Mercedes Benz bifreið til eignar* Skráning hefst hér á golf.is sunnudaginn 1. september kl. 08.00 og stendur til föstudagsins 6. september kl. 15.00. Dagskráin er eftirfarandi: Kl. 09.00 - 09.30: Mæting þátttakenda og skal tilkynna mætingu á skrifstofu klúbbsins, draga númer um hvar þeir verða í röðinni og fá afhenta teiggjöf frá tryggingafélaginu Verði. ATH: Frítt verður fyrir þátttakendur mótsins á æfingasvæði Nesklúbbsins á milli kl. 09.00 og 09.30 Kl. 09.40: Keppendur boðnir velkomnir og mótsreglur útskýrðar Kl. 09.50: Keppendur ganga saman út á 2. teig Kl. 10.00: Fyrsti keppandi slær Að móti loknu verður öllum boðið upp á hressingu í golfskálanum og verðlaun afhent. Leikreglur verða útskýrðar nákvæmlega á staðnum en gott er fyrir þátttakendur að vita að: Allir þátttakendur fá eitt högg óháð því hversu oft þeir hafa farið holu í höggi á árinu. Verði tveir eða fleiri nákvæmlega jafn langt frá þegar að allir hafa lokið keppni þeir sem næst voru slá aftur til að úrskurða um sigurvegara. Fari tveir eða fleiri holu í höggi munu þeir slá aftur til að úrskurða um sigurvegara og þ.m.t. hver fær Mercedes-Benz bifreið frá Öskju. Nauðsynlegt er að hafa skráð afrekið hjá Einherjaklúbbnum til þess að hafa þátttökurétt í mótinu. Það er frítt í mótið, þ.e. þátttökugjald er kr. 0 Hlökkum til að sjá ykkur á Nesvellinum þann 7. september
FÓRST ÞÚ HOLU Í HÖGGI Á ÁRINU 2019
NÝTT MÓT HJÁ NESKLÚBBNUM Í SAMSTARFI VIÐ EINHERJAKLÚBBINN, GOLFSAMBAND ÍSLANDS, ÖSKJU OG VÖRÐ.
Þeir kylfingar sem fóru holu í höggi á árinu 2019 og hafa skráð afrekið hjá Einherjaklúbbnum eiga möguleika á því að vinna flugferð fyrir tvo til Evrópu eða jafnvel Mercedes-Bens bifreið frá ÖSKJU.
Þann 7. september 2019 geta þeir sem hafa skráð holu í höggi hjá Einherjaklúbbnum á tímabilinu 1. janúar 2019 - 31. ágúst 2019 mætt á Nesvöllinn. Þar munu allir allir fá eitt högg á braut 2 og sá sem er næstu holu vinnur flugferð fyrir tvo til Evrópu með Icelandair.
Fyrir holu í höggi í þessari einu tilraun fær viðkomandi Mercedes Benz bifreið til eignar*
Skráning hefst hér á golf.is sunnudaginn 1. september kl. 08.00 og stendur til föstudagsins 6. september kl. 15.00.
Dagskráin er eftirfarandi:
Kl. 09.00 - 09.30: Mæting þátttakenda og skal tilkynna mætingu á skrifstofu klúbbsins, draga númer um hvar þeir verða í röðinni og fá afhenta teiggjöf frá tryggingafélaginu Verði.
ATH: Frítt verður fyrir þátttakendur mótsins á æfingasvæði Nesklúbbsins á milli kl. 09.00 og 09.30
Kl. 09.40: Keppendur boðnir velkomnir og mótsreglur útskýrðar
Kl. 09.50: Keppendur ganga saman út á 2. teig
Kl. 10.00: Fyrsti keppandi slær
Að móti loknu verður öllum boðið upp á hressingu í golfskálanum og verðlaun afhent.
Leikreglur verða útskýrðar nákvæmlega á staðnum en gott er fyrir þátttakendur að vita að:
Hlökkum til að sjá ykkur á Nesvellinum þann 7. september